24.03.1927
Sameinað þing: 5. fundur, 39. löggjafarþing.
Sjá dálk 414 í D-deild Alþingistíðinda. (3468)

88. mál, stúdentspróf við Akureyrarskóla

Bernharð Stefánsson:

Það þýðir lítið, þótt við hv. þm. Ak. (BL) kýtum lengur um þetta. Hann segir það skorið, sem jeg segi klipt. Mínu máli til stuðnings hefi jeg gögn frá hinum opinbera fundi á Akureyri í stuðningsblaði hans „Íslendingi“. Og á þeim geta menn sjeð, að jeg hefi rjett fyrir mjer, en hann rangt.