05.05.1927
Neðri deild: 67. fundur, 39. löggjafarþing.
Sjá dálk 571 í D-deild Alþingistíðinda. (3572)

118. mál, yfirsíldarmatsmaður á Seyðisfirði

Forseti (BSv):

Það hefir komið fram till. um að vísa þessari till. til þál. um yfirsíldarmatsmann á Seyðisfirði til sjútvn., en áður var komin fram till. um að vísa málinu í heild sinni til stjórnarinnar. En nú hefir orðið samkomulag um, að bera megi hina síðari till. fyrst upp til atkv., og verður því till. um að vísa málinu til nefndar borin upp fyrst, og umr. frestað, ef hún verður samþ.