18.05.1927
Efri deild: 78. fundur, 39. löggjafarþing.
Sjá dálk 675 í D-deild Alþingistíðinda. (3655)
54. mál, milliþinganefnd um hag bátaútvegsins
Jón Baldvinsson:
Jeg var einn af þeim, sem neituðu um afbrigði í kvöld fyrir fyrsta málið á dagskránni (sölu á Mosfellsheiðarlandi). Jeg áleit, sannast að segja, fulla ástæðu til þess, þegar mál eru nýkomin í deildina og þeim á að hespa af með 2–3 umræðum sama daginn með stöðugum afbrigðum á nýjum fundum. Hinsvegar er ekki hirt um að útkljá önnur mál, sem bíða, mál, sem horfa mjög til almenningsheilla.