18.05.1927
Efri deild: 78. fundur, 39. löggjafarþing.
Sjá dálk 675 í D-deild Alþingistíðinda. (3657)

54. mál, milliþinganefnd um hag bátaútvegsins

Jón Baldvinsson:

Mjer heyrðist hæstv. forseti tilkynna fundinn kl. 10½ árdegis. Mundi forseti ekki vilja breyta ákvörðun sinni og halda fundinn t. d. kl. 9 árdegis. Neðri deild heldur sinn síðasta fund kl. 10 árd.; hefir hún ekki nema eina þáltill. á dagskrá, og svo önnur þau mál, sem kunna að verða send frá efri deild. Ef við höldum fund kl. 10½ og einhverjar umr. verða, er sýnilegt, að hv. Nd. þarf að bíða lengi, eða hún slítur fundi, og komast þá málin ekki að.