27.04.1927
Neðri deild: 60. fundur, 39. löggjafarþing.
Sjá dálk 677 í D-deild Alþingistíðinda. (3662)

99. mál, vatnsorka í Sogi

Flm. (Jörundur Brynjólfsson):

Þar sem þetta er fyrri umr. um till. og jeg býst við því, að henni verði vísað til nefndar, sje jeg ekki ástæðu til þess að fjölyrða um hana nú. Jeg vænti þess, að hv. deild fallist á að láta till. fara umræðulaust til nefndar og geyma umr. um hana þar til hún kemur til síðari umr. — Geri jeg það að till. minni, að henni verði vísað til allshn.umr. lokinni.