25.04.1927
Sameinað þing: 7. fundur, 39. löggjafarþing.
Sjá dálk 692 í D-deild Alþingistíðinda. (3691)

52. mál, byggingar- og landnámssjóður

Flm. (Jónas Jónsson):

Síðan jeg bar fram þáltill. þessa, hafa komið fram 2 þskj., er snerta þetta mál. Annað þeirra er nú komið úr nefnd í hv. Nd., en hitt, sem er um skipun milliþinganefndar í búnaðarmálum, hefir gengið í gegnum hv. Nd. og verið samþ. við fyrri umr. í hv. Ed. Ef það verður samþykt, ætla jeg að breyta þessari þáltill. að formi, og óska því, að hún sje tekin út af dagskrá, þangað til útsjeð er um nefndarskipunina.