31.03.1927
Efri deild: 41. fundur, 39. löggjafarþing.
Sjá dálk 753 í D-deild Alþingistíðinda. (3723)

91. mál, störf fiskifulltrúans á Spáni

Fyrirspyrjandi (Ingvar Pálmason):

Jeg vil aðeins lýsa yfir því, að jeg hefi ekki í ræðum mínum látið eitt orð um það falla, að þrengja bæri Spánarmarkaðinn fyrir íslenskan fisk, heldur hefi jeg aðeins haldið því fram, að oss sje það lífsnauðsyn að færa markaðinn þaðan.