14.03.1927
Efri deild: 27. fundur, 39. löggjafarþing.
Sjá dálk 248 í B-deild Alþingistíðinda. (380)

66. mál, varnir gegn útbreiðslu næmra sjúkdóma

Frsm. (Guðmundur Ólafsson):

Allshn. hefir komið fram með brtt. á þskj. 166, um að fyrirsögn frv. breytist eins og þar stendur. Jeg tók það fram við 2. umr., að þessi brtt. myndi koma, og gat þess, að það væri nauðsynlegt, því að ákvæði þessa frv. er viðauki við tjeð lög. Vona jeg því, að hv. deild fallist á, að brtt. þessi sje rjettmæt.