06.04.1927
Efri deild: 46. fundur, 39. löggjafarþing.
Sjá dálk 256 í B-deild Alþingistíðinda. (419)

98. mál, rannsókn banameina og kennslu í meina- og líffærafræði

Frsm. (Guðmundur Ólafsson):

Allshn. hefir athugað frv. þetta. Það er borið fram eftir tilmælum læknadeildar háskólans. Hún lítur svo á, að þörf sje á lagasetningu um þetta efni, einkum vegna kenslu læknaefna. Að öðru leyti get jeg látið mjer nægja að vísa til greinargerðar frv. Jeg vil svo fyrir hönd nefndarinnar leggja það til, að hv. deild samþykki frv. óbreytt.