19.04.1927
Neðri deild: 55. fundur, 39. löggjafarþing.
Sjá dálk 258 í B-deild Alþingistíðinda. (427)

98. mál, rannsókn banameina og kennslu í meina- og líffærafræði

Frsm. (Jón Kjartansson):

Það eru aðeins örfá orð. Allshn. hefir haft þetta mál til athugunar og ekkert fundið athugavert við það, og leggur því til, að það nái fram að ganga.

Málið er komið frá hv. Ed., sem ekki gerði neinar breytingar á frv., svo að vænta má, að það geti gengið hljóðalaust í gegnum þessa hv. deild.