12.03.1927
Neðri deild: 28. fundur, 39. löggjafarþing.
Sjá dálk 263 í B-deild Alþingistíðinda. (437)

31. mál, varnir gegn sýkingu nytjajurta

Frsm. (Pjetur Þórðarson):

Jeg vil aðeins vekja athygli hv. deildarmanna á því, að hjer er nokkur orðabreyting á þskj. 157, sem nefndin leggur til, að gerð verði við frv. Vænti jeg, að hv. þdm. vilji sýna till. góðvild og láta frv. með þessari breytingu ná samþykki.