07.03.1927
Efri deild: 21. fundur, 39. löggjafarþing.
Sjá dálk 271 í B-deild Alþingistíðinda. (453)
68. mál, sýsluvegasjóður
Flm. (Jónas Kristjánsson):
Þegar jeg samdi þetta frv., hafði jeg aðallega Sauðárkrók í huga, en þar eiga ýmsir utanhreppsbúar húseignir, sem gjaldið nær ekki til, en óþarft virðist að sleppi við greiðslu þess. Mjer þótti ekki rjett að leggja það til, að alstaðar væri lagt gjaldið á eftir efnum og ástæðum aðeins. Jeg bjóst við, að það mundi komast á þar, sem sanngirni mælti með, án þess að það væri beinlínis lögboðið. Að því er snertir samvinnufjelögin, mundi skattur á þeim ekki hækka, þótt jafnað væri niður eftir efnum og ástæðum, vegna þess að það er svo lítið, sem á þau má leggja lögum samkvæmt, í samanburði við aðra. Aðrir verða þá að greiða nokkuð af skattinum þeirra vegna. Það getur verið mikið álitamál, hvort jafna beri niður eins og hv. 1. þm. Eyf. (EÁ) vill. Jeg skal ekki gera það að þrætuefni. Mjer væri jafnvel sú aðferð kærust, ef það skapar meira rjettlæti, þótt jeg rjeðist ekki í að bera hana fram. En því olli meðal annars það, að mig brestur kunnugleika á þessum málum.
Það gladdi mig, að hv. þm. (EÁ) tók vel í málið, og jeg mun ekki setja mig á móti þeirri breytingu, sem hann stakk upp á. Frv. nær raunar betur tilgangi sínum, ef því er breytt á þá leið.