28.03.1927
Neðri deild: 40. fundur, 39. löggjafarþing.
Sjá dálk 277 í B-deild Alþingistíðinda. (464)

68. mál, sýsluvegasjóður

Atv.- og dómsmrh. (Magnús Guðmundsson):

Jeg vil óska þess, að mál þetta fari til samgmn. að umr. lokinni. Jafnframt vil jeg biðja hv. nefnd að athuga, hvort ekki þyrfti að vera nákvæmara orðalag á 2. gr. frv. Mjer finst það geta verið nokkurt vafamál, hvernig á að skilja þá grein.