05.04.1927
Neðri deild: 47. fundur, 39. löggjafarþing.
Sjá dálk 286 í B-deild Alþingistíðinda. (490)

108. mál, veð

Frsm. (Jón Kjartansson):

Jeg get látið nægja fyrir hönd allshn. að vísa til hinnar ítarlegu greinargerðar, sem fylgir frv. þessu. Þó skal jeg bæta því við, að það er fyrir tilmæli beggja bankanna, að frv. er fram komið. Vænti jeg svo, að hv. deildarmenn geti fallist á, að nauðsynlegt sje að fá lög um þetta efni. Legg jeg svo til, að frv. þessu verði vísað til 2. umr., að þessari umr. lokinni.