05.03.1927
Neðri deild: 22. fundur, 39. löggjafarþing.
Sjá dálk 328 í B-deild Alþingistíðinda. (548)
43. mál, skemmtanaskattur og þjóðleikhús
Frsm. minni hl. (Jörundur Brynjólfsson):
Jeg þarf ekki mörgum orðum að þessu máli að eyða, þar sem hv. frsm. meiri hl. (ÁJ) hefir nú fyrir hönd meiri hlutans fallist á till. mínar. Vona jeg, að meiri hl. hv. deildar geri slíkt hið sama.