11.04.1927
Neðri deild: 52. fundur, 39. löggjafarþing.
Sjá dálk 332 í B-deild Alþingistíðinda. (564)

116. mál, landamerki ofl.

Frsm. (Jörundur Brynjólfsson):

Allshn. hefir flutt þetta frv. eins og það barst til hennar. Um ástæður fyrir því nægir að þessu sinni að vísa til greinargerðarinnar, sem fylgir því. Að öðru leyti vil jeg aðeins taka fram, að nefndin áskilur sjer fullan rjett til að koma síðar með brtt. við frv.