09.02.1927
Sameinað þing: 1. fundur, 39. löggjafarþing.
Sjá dálk 14 í B-deild Alþingistíðinda. (6)

Rannsókn kjörbréfa

Frsm. 1. kjördeildar (KIJ):

Fyrsta kjördeild hefir haft til meðferðar 1

kjörbrjef þeirra Jóns Ólafssonar, 3. þm. Reykv., og Jóns Guðnasonar, þm. Dal. Kjördeildin álítur kosningu beggja þessara þingmanna fullkomlega löglega og leggur einróma til, að hún verði samþykt, enda hafa engar kærur komið fram.