29.03.1927
Neðri deild: 41. fundur, 39. löggjafarþing.
Sjá dálk 348 í B-deild Alþingistíðinda. (620)

84. mál, sorphreinsun og salernahreinsun á Akureyri

Flm. (Björn Líndal):

Um þetta litla frv., sem hjer liggur fyrir, er óþarfi að segja mikið, og má vísa til greinargerðarinnar, sem því fylgir.

Bæjarstjórn Akureyrar hefir samþykt þetta frv. fyrir sitt leyti og óskar, að það verði að lögum, og vænti jeg, að hv. deild verði því ekki mótfallin.

Jeg álít óþarft, að þessu máli sje vísað til nefndar, og vil leyfa mjer að óska, að því verði vísað til 2. umr. nefndarlaust.