14.05.1927
Efri deild: 74. fundur, 39. löggjafarþing.
Sjá dálk 369 í B-deild Alþingistíðinda. (666)

123. mál, veðmálastarfsemi í sambandi við kappreiðar

Jón Baldvinsson:

Jeg verð að benda háttv. frsm. allshn. (GÓ) á það, að mál þetta var hjer til 2. umr. í gær, og hefir því ekki gefist mikill tími til athugunar og til þess að koma með brtt. Er því ekki nema eðlilegt, að þær komi seint.