04.04.1927
Neðri deild: 46. fundur, 39. löggjafarþing.
Sjá dálk 391 í B-deild Alþingistíðinda. (717)

14. mál, óskilgetin börn

Frsm. (Jón Kjartansson):

Síðan mál þetta var til umræðu hjer, hefir hv. Ed. haft það til meðferðar og gert á því smábreytingu. Hún hefir bætt við 1. gr. þessum fimm orðum: „hinn sama á öllu landinu“. Þótt nefndin líti svo á, að þessi viðbót sje óþörf, getur hún samt ekki sjeð, að hún verði frv. neitt til tjóns. Sjer hún því ekki ástæðu til að færa þetta í samt lag aftur og leggur til, að frv. verði samþykt eins og það nú liggur fyrir.