07.05.1927
Efri deild: 68. fundur, 39. löggjafarþing.
Sjá dálk 431 í B-deild Alþingistíðinda. (755)
50. mál, vörn gegn berklaveiki
Guðmundur Ólafsson:
Jeg vildi aðeins láta þess getið út af þeim ummælum hv. frsm. nefndarinnar, að deildin væri fallin frá því að óska eftir endurskoðun á berklavarnalögunum, að jeg álít, að svo sje ekki. Jeg hefi a. m. k. haldið því fram, að slík endurskoðun þyrfti að fara fram.
Hv. frsm. (JJós) talaði um brtt. meiri hl. nefndarinnar. Jeg get lýst því yfir, að jeg er með þessum brtt. eins og aðrir nefndarmenn. Það kann að vera, að óhagræði þyki að því, að tveggja ára gjöld til berklavarna komi á eitt ár. En það má líka búast við, að gjöldin lækki, ef brtt. nefndarinnar ná fram að ganga, sem jeg vona, að verði, því að þær miða til bóta, þar til við fáum ný og betri berklavarnalög.