26.04.1927
Neðri deild: 59. fundur, 39. löggjafarþing.
Sjá dálk 450 í B-deild Alþingistíðinda. (779)
113. mál, tollar og gjöld með 25% gengisviðauka
Hjeðinn Valdimarsson:
Jeg get ekki látið hjá líða þessa umr. án þess að mótmæla því, sem fram kom af hálfu hæstv. stjórnar.
Þessi lög hafa verið framlengd á mörgum þingum, altaf með því loforði, að þau verði afnumin eftir skamman tíma, og á þessu loforði hefir þjóðin verið blekt. Það hefir verið sagt á þingmálafundum, að þetta væri ráðstöfun, sem myndi falla úr gildi innan skamms, og nú síðast hefir Íhaldsflokkurinn stært sig af því á þingmálafundum, að gengisviðaukinn væri niður feldur frá næstu áramótum; en svo á að fara að framlengja hann, og sú aðferð er höfð, að stjfrv. kemur ekki fyr en liðið er á þingtímann og þingmenn eru orðnir svo hlaðnir störfum, að það lítur út fyrir, að þeir verði neyddir til að ganga inn á þetta frv., þar sem þeim finst ekki tími til að hugsa sjer nýja tekjuauka.
Hæstv. forsrh. (JÞ) kemur með nýja skýringu á því, hvers vegna þetta frv. er svo seint fram komið, en hún virtist ekki til, þegar hann var að svara hv. þm. Str. (TrÞ). Það lítur út fyrir, að ekki einungis hæstv. forsrh. (JÞ) hafi gleymt því, að þessi gengisviðauki á að ganga úr gildi, heldur líka fjvn., og þess vegna er þessi gamli draugur vakinn upp að nýju á elleftu stundu.
Nú kom það fram í ræðu hv. 1. þm. Rang. (KIJ), og sömuleiðis hjá hæstv. forsrh. (JÞ), að það er ætlast til, enda þótt þessi lög eigi ekki að framlengja lengur en til ársloka 1928, að þau gildi áfram, og hæstv. fjrh. (JÞ) virðist jafnvel vera að kvarta yfir því, að slík tollalöggjöf skuli yfirleitt vera tímabundin. Það er augsýnilegt af uppruna þessa skattafrv., að það átti fyrir löngu að vera niður fallið. Eins og hv. frsm. fjhn. (KIJ) gat um, var ætlast til, að það fjelli niður þegar sterlingspundið var komið í 25 krónur. Það stendur nú í 22 kr. 15 aur. Það er með öðrum orðum svo, að verði þetta frv. samþykt, þá verður tollhæðin um 36% hærri heldur en eðlilegt er, ef lagt er til grundvallar það gengi, sem var, þegar þessi lög voru fyrst samþykt. Jeg verð að skoða það sem blekkingu að lofa þjóðinni því, að þessi lög skuli verða numin úr gildi, en svo þegar á næsta þingi að koma með frv. um að halda þeim áfram.
Það segir sig sjálft, að enda þótt mætti búast við tekjuhalla á fjárlögunum, ef ekki koma auknar tekjur, þá er hægt að hafa upp tekjur án þess að halda tollum, 25% hærri en nauðsynlegt þótti á mestu kreppuárunum. Það eru til aðrar leiðir en tollaleiðin, viðurkendar af öllum fjármálastjórnum erlendis, þó að hæstv. ráðh. (JÞ) álíti, að best sje að útvega ríkissjóði tekjur með tollum.
Jeg hygg, að sje litið á nágrannalöndin, þá muni hvergi vera farið svo djúpt ofan í vasa almennings eða lagður slíkur nefskattur á fátæklinga, því að það mun hæstv. fjrh. (JÞ) vera kunnugt um, að þessi tollur er byrði, sem lendir þyngst á stórum fjölskyldum. Þetta gengisfrv. er auðvitað í samræmi við stefnu Íhaldsflokksins, en jeg verð að segja það, að þessi stefna virðist hafa meiri ítök í þessari deild en skyldi, þar sem Framsóknarflokkurinn virðist líka hafa gengið inn á hana. Hinsvegar veit jeg, að kjósendur úti um landið líta á alt annan veg á þessi skattamál.