26.04.1927
Neðri deild: 59. fundur, 39. löggjafarþing.
Sjá dálk 452 í B-deild Alþingistíðinda. (780)
113. mál, tollar og gjöld með 25% gengisviðauka
Halldór Stefánsson:
Jeg sje enga ástæðu til þess að fara að ræða alment um skattamál undir þessum umræðum, og heldur ekki þó að hæstv. forsrh. (JÞ) væri ekki algerlega ánægður með þau ummæli, sem jeg hafði við fyrirvarann.
Hæstv. forsrh. þótti það eitthvað óviðeigandi, að jeg nefndi þetta óreiðu og sagði, að þetta bæri vott um óreiðu í okkar tolla- og skattamálum, en jeg get ekki fundið, að jeg hafi haft of sterk orð um það. Jeg get ekki kallað, að það sje annað en óreiða, að verða að bera fram lög um sífelda bráðabirgðatolla, sem lofað er að afnema bráðlega, en svo eru framlengdir æ ofan í æ, enda var það ekki annað, sem fyrir mjer vakti. En viðvíkjandi þeim afsökunum, sem hæstv. forsrh. vildi bera fyrir sig fyrir það, að þetta frv. skyldi ekki vera fyr fram borið, þá ætla jeg ekki að fara út í þær. Það er vitanlegt, að hæstv. stjórn muni þurfa að bera fyrir einhverja afsökun, því að það var þó alt annað, þó að frv. hefði ekki verið lagt fyr fram á þinginu, ef þess hefði verið getið þegar fjárlögin voru lögð fyrir þingið, að tekjuáætlun fjárlaganna væri bygð á því, að þetta frv. yrði borið fram og samþykt seinna á þinginu.