12.03.1927
Efri deild: 26. fundur, 39. löggjafarþing.
Sjá dálk 633 í B-deild Alþingistíðinda. (984)

58. mál, bankaábyrgð fyrir Landsbanka Íslands

Forsrh. og fjrh. (Jón Þorláksson):

Það er langt frá því, að jeg neiti að mæta til viðtals við nefndina á helgidegi eða neiti að gefa upplýsingar um málið. Jeg tók það einmitt fram í svari mínu til hv. 5. landsk. (JBald), út frá því sem hann sagði, að jeg væri einnig fús á að ræða þá hlið málsins við hv. fjhn.