23.03.1928
Neðri deild: 55. fundur, 40. löggjafarþing.
Sjá dálk 2044 í B-deild Alþingistíðinda. (1034)
3. mál, landsreikningar 1926
Magnús Jónsson:
Jeg ætla ekki að tala langt mál, aðeins inna eftir því, hvort hv. frsm. fjhn. hefir getað orðið við þeim tilmælum mínum, er jeg kom fram með við 2. umr., að sjá svo til, að við 3. umr. gætu legið fyrir upplýsingar um útistandandi skuldir ríkisverslananna í árslok 1927. Skýrsla um þetta var ekki til við 2. umr., en mjer skildist á hæstv. fjmrh., að hún mundi verða til áður en langt liði.