23.03.1928
Neðri deild: 55. fundur, 40. löggjafarþing.
Sjá dálk 2045 í B-deild Alþingistíðinda. (1036)
3. mál, landsreikningar 1926
Magnús Jónsson:
Hæstv. fjmrh. taldi tormerki á, að reikningarnir gætu legið fyrir svo snemma, að það yrði áður en málið væri afgreitt hjeðan frá þessari háttv. deild, en ekki ómögulegt, að þeir kynnu að verða til, áður en málið færi frá þinginu.
Það má vel vera, að hv. frsm. hafi ekki verið í deildinni, er jeg bar fram tilmæli mín. Jeg óskaði aðeins eftir, að það lægi fyrir svipuð skýrsla um þetta atriði og lá fyrir í þinglok í fyrra.