30.03.1928
Efri deild: 61. fundur, 40. löggjafarþing.
Sjá dálk 2046 í B-deild Alþingistíðinda. (1044)

3. mál, landsreikningar 1926

Frsm. (Ingvar Pálmason):

Um þetta frv. er það sama að segja og það næsta á undan (frv. til fjáraukalaga 1926). Nefndin hefir athugað það, borið það saman við landsreikningana og farið yfir tölur þess. Nefndin hefir ekkert fundið við frv. að athuga og leggur því til, að það verði samþykt.