30.03.1928
Efri deild: 61. fundur, 40. löggjafarþing.
Sjá dálk 2047 í B-deild Alþingistíðinda. (1046)

3. mál, landsreikningar 1926

Fjmrh. (Magnús Kristjánsson):

Út af skýringu hv. 3. landsk. vil jeg geta þess, að jeg hefi að vísu minst á þetta við forstjórann, en það hefir dregist úr hömlu fyrir honum að greiða inn fjeð. Þó er ekki loku fyrir skotið, að þetta geti komið á reikninginn fyrir árið 1927. Jeg vænti, að tilraun verði gerð til þess að ná inn fjenu svo snemma, að það geti komið á reikning síðasta árs.