23.01.1928
Neðri deild: 4. fundur, 40. löggjafarþing.
Sjá dálk 188 í C-deild Alþingistíðinda. (1552)

18. mál, dýralæknar

Fors.- og atvmrh. (Tryggvi Þórhallsson):

Jeg ætla ekki að fara að svara ræðu háttv. þm. Dal., en vildi aðeins taka það fram, að þetta hrósefni, sem hann eignar sjer, um lánveitinguna til bændanna fyrir norðan, er mjer að þakka. Því að það var fyrir mín orð, að hann fjelst á að veita lánið; áður var hann mótfallinn því.