06.02.1928
Neðri deild: 15. fundur, 40. löggjafarþing.
Sjá dálk 225 í C-deild Alþingistíðinda. (1600)
63. mál, vegalög
Flm. (Haraldur Guðmundsson):
Það er ekki neitt nýnæmi hjer í hv. deild að sjá framan í frv. um þetta efni. Þetta frv. er flutt af okkur þremur, mjer og hv. þm. Ísafjarðarsýslnanna beggja. Á hverju ári er veitt fje úr ríkissjóði, svo hundruðum þúsunda skiftir, bæði til nýrra vega og viðhalds eldri vegum víðsvegar á landinu. En það má svo heita, að þessi hluti landsins, sem hjer um ræðir, Vestfirðir, hafi orðið alveg afskiftur. Nú er hjer ekki gengið svo langt, að farið sje fram á fjárveitingu til nýrra vegalagninga, heldur aðeins hitt, að þessi vegur frá Hnífsdal vestur yfir, suður um Vestfirði og Barðaströnd; að Þorskafirði, verði tekinn í tölu þjóðvega. Hjer er heldur ekki farið fram á, að þjóðvegur sje talinn inn fyrir hvern fjörð, heldur aðeins milli fjarða, þar sem vogskornast er.
Jeg álít, að hjer sje svo skamt gengið í kröfunum, að sú nefnd, sem málið fær til umsagnar, geti ekki annað en fallist á frv., ef hún vill sýna sanngirni í till. sínum.
Jeg skal svo ekki tefja umr. með lengra spjalli, en legg til, að frv. verði, að umr. lokinni, vísað til hv. samgmn.