08.02.1928
Neðri deild: 17. fundur, 40. löggjafarþing.
Sjá dálk 277 í C-deild Alþingistíðinda. (1625)

74. mál, löggilding verslunarstaðar á Vattarnesi

Magnús Guðmundsson:

Jeg vildi leyfa mjer að benda á það, að fyrir þinginu liggja nú nokkur frv. um löggilding verslunarstaða. En það er bæði heppilegt og sparnaður að því, að setja öll slík frv. saman í ein lög. Vil jeg því beina því til hv. flm., hvort hann sjái sjer ekki fært að fara að dæmi hæstv. forsrh. og slá þessu frv. saman við þau frv., er nú liggja fyrir hv. Ed., því annars farast þau á mis, og bakar það aðeins óþarfa fyrirhöfn og kostnað.