16.03.1928
Neðri deild: 49. fundur, 40. löggjafarþing.
Sjá dálk 441 í C-deild Alþingistíðinda. (1733)
128. mál, fiskiræktarfélög
Frsm. (Jörundur Brynjólfsson):
* Jeg get fyrir mitt leyti fallist á það, sem hv. þm. N.-Ísf. sagði um 13. gr., að ekki sje ástæða til, að þessi gjöld hafi forgangsrjett umfram önnur, og mætti athuga það atriði fyrir 3. umr. Viðvíkjandi því, sem hann drap á ákvæði 9. gr. um gjaldskrárnar, þá kann það að vera álitamál. Nefndin áleit sannast að segja, að sú gjaldskrá, sem fjelögin senda frá sjer, mundi vera að öllu leyti gerð með samkomulagi. En ef mönnum sýnist tryggilegra að hafa einhver önnur ákvæði um þetta, t. d. í þá átt, sem háttv. þm. N.-Ísf. drap á, þá sje jeg ekki ástæðu fyrir mitt leyti að amast við því. En þetta hvorttveggja mætti athuga til 3. umr.
*Ræðuhandr. óyfirfarið af þm.