15.02.1928
Neðri deild: 23. fundur, 40. löggjafarþing.
Sjá dálk 2 í D-deild Alþingistíðinda. (2003)

84. mál, rannsókn vegarstæðis

Flm. (Magnús Guðmundsson):

Vitaskuld fylgir þessu dálítill kostnaður. En jeg hefi aldrei vitað til þess, að nokkur stjórn hafi neitað að fremja slíka rannsókn, heldur lofað rannsókninni, svo framarlega sem hún gæti, enda hefir hún nógum mönnum á að skipa til þess.