03.03.1928
Efri deild: 38. fundur, 40. löggjafarþing.
Sjá dálk 2514 í B-deild Alþingistíðinda. (2403)
17. mál, gin- og klaufaveiki
Halldór Steinsson:
Jeg er ekki alveg sömu skoðunar og hæstv. forsrh. um, að hjer sje beinlínis um mikið alvörumál að ræða. Jeg verð að segja, að jeg tel þetta frv. fremur þýðingarlítið. Það er alkunnugt, að gin- og klaufaveiki hefir gengið svo árum skiftir í nágrannalöndunum, án þess að nokkrar ráðstafanir hafi verið gerðar hjer á landi til varnar henni, og enn hefir það ekki orðið að sök. Við höfum því ástæðu til að vona, að það komi ekki heldur að sök í framtíðinni, þó að ekki verði gerðar sjerstakar ráðstafanir. Í öðru lagi er ómögulegt að setja með lögum svo tæmandi ákvæði til varnar veikinni, að örugt sje, nema með því að banna innflutning á vörutegundum, sem hreint og beint koma í bága við það mataræði, sem landsmönnum er hentugt og nauðsynlegt. Það er að nokkru leyti gert í þessu frv.
Jeg mun samt ekki leggja fast á móti frv., en mjer finst d-liður brtt. hv. 1. þm. Eyf. alveg ótækur. Þar er farið fram á að banna innflutning á fóðurkökum, rófum, kartöflum, káli og öðru hraðvöxnu grænmeti, mjólkurafurðum og eggjum. Jeg vil beiðast skýringar á því, hvað átt er við með hraðvöxnu grænmeti. Það mætti ef til vill komast af án þeirra tveggja tegunda, sem fyrst eru taldar. En um allar hinar er það að segja., að það nær engri átt að banna innflutning á þeim. Það hefir verið bent á, að kartöflur væru ein af þeim fæðutegundum, sem nauðsynlegar eru til manneldis. En kartöflur eru alls ekki ræktaðar hjer á landi í nógu stórum stíl til þess að fullnægja þörfum allra landsbúa, þó að það væri auðvitað ekki nema æskilegt. En meðan svo er ekki, nær engri átt að banna innflutning á jafnnauðsynlegri og hollri fæðu. Sama er að segja um niðursoðna mjólk og egg. Þó að talsvert sje til af þessum fæðutegundum, fullnægir það ekki þörfum landsbúa, svo að ekki kemur til mála að banna innflutning á þeim. Þá kem jeg að káli og öðru hraðvöxnu grænmeti. Jeg stóð aðallega upp til þess að mótmæla ákvæði d-liðs að því er snertir þær fæðutegundir, af því að brtt. háttv. 5. landsk. (JBald), sem ganga í þá átt, að upphefja bann á ýmsum þeim fæðutegundum, sem getur um í brtt. hv. 1. þm. Eyf., ná ekki yfir kál og annað grænmeti. Það er þó vitanlegt, að ýmsar tegundir af káli eru mjög holl fæða, sem fæst víða í kauptúnum landsins, og auk þess nauðsynleg fyrir marga sjúklinga. Jeg vil mælast til, að hv. 3. hluti nefndarinnar, sem jeg ber best traust til í þessu máli, vildi til 3. umr. styðja brtt. þess efnis, að leyfa innflutning á káli og öðru grænmeti.