06.03.1928
Efri deild: 40. fundur, 40. löggjafarþing.
Sjá dálk 2525 í B-deild Alþingistíðinda. (2415)
17. mál, gin- og klaufaveiki
Fors.- og atvmrh. (Tryggvi Þórhallsson):
Jeg stend hjer ekki upp fyrst og fremst vegna þessarar brtt.; hún skiftir tiltölulega litlu máli, á móts við þær breytingar, sem gerðar voru á frv. við 2. umr. Legg jeg þó að sjálfsögðu á móti henni. En mjög var það á móti skapi mínu, hvernig atkvgr. fjell við 2. umr., er hv. deild gat ekki fallist á að banna þær vörur, er nú eru bannaðar. Álít jeg, að hv. deild hafi ekki gert rjett í því; ekki haft augu nægilega opin fyrir hættunni. En vitanlega verður ráðh. að beygja sig fyrir þingvilja; en jeg geri það nauðugur. Jeg álít, að bönn þau, sem nú eru í gildi, sjeu fyllilega rjettmæt vegna landbúnaðar okkar, þó að þau verði nú væntanlega að fella úr gildi vegna þessara undirtekta þingsins.