14.04.1928
Neðri deild: 72. fundur, 40. löggjafarþing.
Sjá dálk 2657 í B-deild Alþingistíðinda. (2489)

17. mál, gin- og klaufaveiki

Lárus Helgason:

Þar sem jeg hefi ekki talað í málinu við þessa umr. og þar sem landbn. hefir tekið sína brtt. aftur, til þess að stefna málinu ekki í voða eins og málavextir eru nú, en umrædd brtt. hefir nú verið tekin upp aftur, þá vil jeg af nefndum ástæðum ganga að frv. eins og hv. Ed. hefir afgreitt það, og greiði atkv. móti brtt.