17.02.1928
Neðri deild: 25. fundur, 40. löggjafarþing.
Sjá dálk 2941 í B-deild Alþingistíðinda. (2726)

52. mál, löggilding verslunarstaða

Sveinn Ólafsson:

Þótt svo virðist, sem þessu frv. þurfi ekki að vísa til nefndar, vil jeg þó gera það að till. minni, að því verði vísað til allshn., af því að samkynja mál var látið ganga til þeirrar nefndar fyrir nokkrum dögum. Finst mjer sjálfsagt, að nefndin reyni að samræma þessi tvö frv. og vinni úr hvorutveggja.