25.02.1928
Neðri deild: 32. fundur, 40. löggjafarþing.
Sjá dálk 3184 í B-deild Alþingistíðinda. (2895)

126. mál, prentsmiðjur

Flm. (Ásgeir Ásgeirsson):

Jeg þarf engan formála að hafa við þetta frv.; það ber rök sín með sjer sjálft. Greinargerðin er nægilega ítarleg til þess að skýra málið. Óska jeg, að frv. verði, að þessari umr. lokinni, vísað til 2. umr. og mentmn.