13.04.1928
Neðri deild: 70. fundur, 40. löggjafarþing.
Sjá dálk 1241 í B-deild Alþingistíðinda. (295)
1. mál, fjárlög 1929
Frsm. fyrri kaflans (Ingólfur Bjarnarson):
Fyrir hönd fjvn. flyt jeg þá till., að háttv. deild samþykki frv. eins og það kemur frá hv. Ed. Og þar sem engar brtt. liggja fyrir, þá þarf ekki að fara um þá till. mörgum orðum. Þó skal jeg geta þess, að till. nefndarinnar um að ganga að frv. óbreyttu er ekki af því sprottin, að nefndin sje ánægð með afgreiðslu hv. Ed., heldur af hinu, að hún óttast, ef farið verður að gera breytingar á því, að það leiði til þess, að útgjöldin aukist að mun frá því, sem orðið er, og byggir hún þá skoðun sína á afstöðu deildarinnar til ýmsra útgjaldatillagna frá fyrri umr. þessa máls. Því leggur nefndin til, að frv. verði samþ. eins og það liggur fyrir.
Um meðferð hv. Ed. á frv. skal jeg taka það fram, að útgjaldahliðin hefir aukist um 110 þús. kr., en tekjuhliðin um 775 þús. kr., svo að nú sýnir frv. 32600 kr. tekjuafgang. Hækkun teknanna byggist á tekjuaukafrv., sem samþ. hafa verið á þinginu, og má ætla, að sú hækkun, sem gert er ráð fyrir, sje nærri sanni. En hinsvegar má telja vafamál, hvort sú hækkun, sem hv. fjvn. Ed. hefir gert á tekjum af víneinkasölunni, er með öllu varleg. Jeg álít, eins og málið horfir nú við, þá sje ekki ástæða til að ræða einstakar breytingar, sem Ed. hefir gert á frv., úr því sú till. liggur fyrir að ganga að frv. óbreyttu. Þó vil jeg taka það fram fyrir hönd fjvn., að henni virðast keyra úr hófi styrkveitingar til einstakra manna, sem Ed. hefir sett inn í frv. Þótt segja megi, að heildarupphæðin sje svo mikil, að ekki skifti miklu fyrir fjárlögin, þá verð jeg að segja, að þessi langa bitlingaruna setur óviðfeldinn og óvanalegan blæ á fjárlögin. Jeg get reyndar látið þess getið, að þessi hv. deild á sinn þátt í þessu, þótt hv. Ed. skari langt fram úr að þessu leyti.
Styrki til háskólanáms stúdenta og utanfara skoðar nefndin sem fjárveiting í eitt skifti fyrir öll og lítur svo á, að með því sje ekkert fyrirheit gefið um framhaldandi styrk. Mjer þætti vænt um, að hæstv. stjórn vildi lýsa yfir skoðun sinni á þessu atriði. Það er nauðsynlegt hlutaðeigendum að vita, hvers þeir mega vænta í þessu efni í framtíðinni. Sjerstakir styrkir til utanfara eru um 15 að tölu, svo að mjer sýnist þetta í óefni komið, þar sem ákveðin upphæð er í fjárlögum til þessara hluta, sem veitt er eftir ákveðnum reglum.
Eins og málið horfir nú við, er ekki ástæða til þess að fara um það fleirum orðum, og get jeg því látið máli mínu lokið.