23.03.1928
Neðri deild: 55. fundur, 40. löggjafarþing.
Sjá dálk 3239 í B-deild Alþingistíðinda. (3005)
59. mál, ríkisborgararéttur
Frsm. (Gunnar Sigurðsson):
Jeg ætla aðeins að taka það fram, að sá dráttur, sem orðið hefir á því, að málið væri tekið á dagskrá, stafar af því, að Norðmaður nokkur á Seyðisfirði hafði sent umsókn um að fá ríkisborgararjett. En það voru nokkrir formgallar á umsókninni og varð því að senda hana aftur. Hefir hún síðan ekki komið, og er því frv. borið fram eins og það var. Allshn. leggur til, að það nái fram að ganga.