08.03.1928
Neðri deild: 42. fundur, 40. löggjafarþing.
Sjá dálk 3277 í B-deild Alþingistíðinda. (3064)

56. mál, bæjarstjórn Ísafjarðar

Haraldur Guðmundsson:

Við 2. umr. gat jeg þess, að jeg mundi bera fram brtt. um, að í stað 6 ára kæmi alt að 6 ára, og skildist mjer þá á formanni hv. allshn., að hann mundi ekkert hafa á móti því. Nú hefir mjer láðst að láta prenta þessa brtt., en hefi afhent hæstv. forseta hana skriflega og vænti, að hv. deild geti fallist á hana.