28.03.1928
Efri deild: 59. fundur, 40. löggjafarþing.
Sjá dálk 3280 í B-deild Alþingistíðinda. (3087)

139. mál, varasáttanefndarmenn í Reykjavík

Frsm. (Jón Þorláksson):

Þetta frv. fer fram á að bæta við 2 varasáttanefndarmönnum í Reykjavík, en áður hefir einungis verið einn varamaður. Frv. hefir gengið í gegnum Nd. og er flutt að beiðni sáttanefndarinnar. Allshn. hefir athugað frv. og telur sanngjarnt að verða við þessum tilmælum og leggur til, að frv. verði samþykt.