24.02.1928
Neðri deild: 31. fundur, 40. löggjafarþing.
Sjá dálk 3282 í B-deild Alþingistíðinda. (3095)

124. mál, laxveiði í Nikulásarkeri í Norðurá

Magnús Jónsson:

Út af orðum hv. 1. þm. Árn. vildi jeg spyrja að því, hvort frv. sje ekki fram komið vegna þess, að ekki hafa náðst samningar við prestinn. Annars er prestur sá, sem nú situr í Stafholti, orðinn aldraður maður, og veit jeg ekki, hvort þessu máli liggur á meira en svo, að það megi bíða um hans daga. En mjer skildist, að frv. væri komið fram af því að samkomulag hefði ekki náðst.