19.03.1928
Neðri deild: 51. fundur, 40. löggjafarþing.
Sjá dálk 3301 í B-deild Alþingistíðinda. (3123)

124. mál, laxveiði í Nikulásarkeri í Norðurá

Bjarni Ásgeirsson:

Jeg á brtt. á þskj. 513 við 3. gr. frv. á þskj. 506. Er þessi brtt. borin fram vegna þess, að 3. gr. frv. kemur ekki fyllilega heim við gildandi laxveiðilög. Mjer þótti því rjett að samræma þetta, og verður það gert, ef brtt. mín verður samþykt. Vona jeg því, að svo verði gert. Hið sama er og að segja um brtt. á þskj. 518, frá hv. 1. þm. Skagf., sem líka er til bóta frv.