13.04.1928
Neðri deild: 70. fundur, 40. löggjafarþing.
Sjá dálk 1332 í B-deild Alþingistíðinda. (332)

1. mál, fjárlög 1929

Forseti (BSv):

Mjer þykir þessu undarlega svarað, því að jeg hugði, að Alþingi rjeði löggjöf í landinu, en ekki vegamálastjóri. Jeg hefi litið svo á til þessa, að hann væri aðeins þjónn þings og stjórnar, en ekki herra þeirra.