26.03.1928
Neðri deild: 57. fundur, 40. löggjafarþing.
Sjá dálk 3664 í B-deild Alþingistíðinda. (3377)

92. mál, síldarbræðslustöðvar

Fors.- og atvmrh. (Tryggvi Þórhallsson):

Jeg vil segja hv. 2. þm. G.-K. það, að jeg hefi ekki haft aðstöðu til þess að setja mig svo inn í þetta mál, að jeg geti svarað þessu endanlega. En jeg get sagt hv. þm. hitt, að ef hann getur sannfært mig um, að þetta, sem hann stingur upp á, gefi minni áhættu fyrir ríkissjóð og meiri hagsmuni fyrir útgerðarmenn, mun jeg alveg hiklaust fylgja því.