03.04.1928
Neðri deild: 64. fundur, 40. löggjafarþing.
Sjá dálk 3735 í B-deild Alþingistíðinda. (3438)

92. mál, síldarbræðslustöðvar

Sigurður Eggerz:

Jeg vil aðeins lýsa yfir því, að skýrsla sú, sem hv. 2. þm. Reykv. gaf um náðun Ólafs Friðrikssonar, var hrein og bein ósannindi frá upphafi til enda, og mundi jeg, ef það væri heimilt samkvæmt þingsköpum, endurtaka þau orð, er jeg viðhafði um þennan hv. þm. áðan.