21.01.1928
Neðri deild: 3. fundur, 40. löggjafarþing.
Sjá dálk 1357 í B-deild Alþingistíðinda. (368)

21. mál, lífeyrir starfsmanna Búnaðarfélags Íslands

Gunnar Sigurðsson:

Jeg vil aðeins gera það að tillögu minni, að mál þetta fari til fjhn. Mjer finst það hvergi eiga frekar heima en þar, þar sem það snertir útgjöld fyrir ríkissjóð, og vil beina þeirri ósk til hæstv. fjmrh., að hann fallist á þessa tillögu.