31.01.1928
Neðri deild: 10. fundur, 40. löggjafarþing.
Sjá dálk 1361 í B-deild Alþingistíðinda. (376)

21. mál, lífeyrir starfsmanna Búnaðarfélags Íslands

Fors.- og atvmrh. (Tryggvi Þórhallason):

Jeg vil aðeins þakka hv. nefnd greiða og góða afgreiðslu þessa máls. Jeg hygg, að brtt. hennar sje til bóta og sje nauðsynlegur viðauki við frv. Vænti jeg þess, að hún nái fram að ganga.