26.03.1928
Neðri deild: 57. fundur, 40. löggjafarþing.
Sjá dálk 4456 í B-deild Alþingistíðinda. (3817)

103. mál, Landsbanki Íslands

Sigurður Eggerz:

Mjer finst óþolandi að taka þetta mikilsverða mál til umr. nú í kvöld; vil jeg því leyfa mjer að skora á hæstv. forseta að taka heldur eitthvert annað mál, sem minna er um vert, og láta heldur byrja á þessu á morgun.